Um okkur

Við erum May og Kristín og stöndum saman að markaðsstofu sem byggir á sköpun, reynslu og skýrum árangri.
Saman sameinum við ólíka styrkleika til að skapa efni og markaðssetningu sem skilar raunverulegum áhrifum.

screenshot

Sigrún May

May er áhrifavaldur á samfélagsmiðlum og hefur unnið með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hún þekkir trendin, hefur sterkt auga fyrir útliti og efni og veit hvað grípur athygli og virkar í raun. Hún kemur með hugmyndirnar, sýnina og sköpunina sem fær vörumerki til að skera sig úr og tengjast markhópnum á náttúrulegan hátt.

may@auramarkads .is

Kristín Helga

Kristín er starfandi markaðsstjóri og sinnir markaðssetningu fyrir fyrirtæki. Hún fylgist náið með þróun og trendum á samfélagsmiðlum, greinir hvað hentar hverju vörumerki og hvernig efni á að byggja upp til lengri tíma. Hún er skipulögð, nákvæm og sterk í plönun og framkvæmd og sér til þess að verkefni séu unnin faglega frá A–Ö.

kristin@auramarkads .is

screenshot
Tölur frá okkar miðlum
Fyrirtæki
0 +
Likes
200000 +
Áhorf
1000000 +

Við trúum því að góð markaðssetning snúist ekki bara um útlit, heldur áhrif.
Ef þú vilt byggja upp sterkara vörumerki á samfélagsmiðlum, þá erum við alltaf opin fyrir nýjum verkefnum.